Aníka Lind Björnsdóttir

http://old.banika.net/

Einstaklingsvefur um líf mitt og áhugamál, Aníka Lind Björnsdóttir. Hér er að finna ljósmyndir, blogg, uppskriftir og annað sem Aníka Lind skrifar um. Aníka Lind er hárgreiðslunemi við Iðnskólann í Hafnafirði.

Efni

Brúðkaup Aníku og Helga

22.05.2007 11:00 - 1223 lestrar - 2 comment

Athöfnin

19493896_d22825fd96_o_120Athöfnin verður haldin í Mörðuvallakirkju í Hörgárdal og mun sr. Sólveig Halla gefa okkur saman. Athöfnin hefst klukkan 12:00. Kirkjan tekur um 200 manns í sæti, svo það ætti að vera nóg pláss fyrir alla. Eyþór Ingi mun syngja í athöfninni.

 

 

 

Veislan

gilsbakkavegur_120

Veislan verður haldin í sal Frímúrarareglunnar hér á Akureyri. Salurinn er staddur að Gilsbakkavegi 15, eða rétt hjá sundlauginni og andapollinum.

Við erum að bjóða 125 gestum, og 26 búnir að afboða komu sína. Við ætlum að hafa þetta þannig að við reiknum með öllum, nema þeir afboði sig og endilega látið okkur vita fyrir 1. júní, síðasta lagi 15. júní. Við drögum mörkin við 16 ára aldur, þannig að þetta er barnlaust brúðkaup.

Veislustjórinn okkar verður enginn annar en æskuvinur Helga, Hannes Ingi Guðmundsson og bekkjarfélagi hans úr MA Atli Þór Ragnarsson.

 

Matseðill

Í veislunni verður hlaðborð og meðal þess sem verður á því er:

  • Parmaskinka
  • Rækju og humarsalat
  • Kjúkingasalat í engifer og chilli
  • Blaceraður lax á teriaki
  • Saltfisksalat
  • Kalkúnabringur með appelsínusósu
  • Kalkúnafylling
  • Lambafille með kryddjurtasósu

Meðlæti

  • Salat
  • Epla og vinberja salat
  • Kartöflugratin
  • Grillaðar sætar kartöflur með timjan og hvítlauk
  • Brauð, focaccia og baquette
  • Pesto
  • Smjör
  • Steikt grænmeti

 

Yfir fordrykk og með eftirréttinum verður súkkulaðigosbrunnur með ávöxtum.

Kokkur: Kristinn Frímann

Drykkir

Á öllum borðum verður rauð- og hvítvín. En að sjálfsögðu verður gos fyrir þá sem vilja og bjór.

Eftirréttur

Í eftirrétt verður brúðarkaka að okkar hætti.. mmmmm.... og boðið verður upp á kaffi fyrir þá sem vilja.

Þjónn: Harpa Friðriksdóttir

Gjafalistinn

  • Gjafabréf í Radionaust Ormsson Akureyri
  • Gjafabréf í IKEA - Vara leið
  • Gjafabréf í Egil Árnason - Vara leið
  • Kitchenaid hrærivél fæst m.a. í Ljósgjafanum Akureyri (Siemensbúðin)
  • Sængur og kodda (ekki dúnn)
  • Í versluninni Húsgögnin Heim erum við búin að velja okkur sófa, sófaborð, borðstofuborð+stóla, rauð-og hvítvínsglös, hnífaparasett, diskasett. Þeir eru með þetta allt á hreinu og það er bæði hægt að kaupa gjafabréf eða kaupa staka hluti.

« fyrri síða | næsta síða »

Upp aftur