Jæja, þá er ég komin suður og dró Helga með mér. Við komum á þriðjudagskvöldið.
Ég er nú ekki mikið í skólanum, 3 daga í viku, og ætla að vona ég nái að vinna eitthvað með. Ég get hins vegar ekki hvenær ég byrja, því það þarf að hnýta alla lausa enda í sambandi við samningsriftinguna við Passion.. þangað til get ég ekki skrifað undir nýjan samning við Arnar. En þetta vonandi leysist allt í næstu viku.
Við erum svo á fullu að reyna að finna leigjendur fyrir íbúðina okkar á AK. Helgi er formaður nefndarinnar og sér að mestu leyti um þetta. Enda fer hann heim á mánudaginn og þá vonandi skýrist allt betur. Við erum svo að bíða eftir svörum um nokkrar íbúðir hér í RVK, en erum með eina skothelda, sem ég er spenntust fyrir. Hún er reyndar á Álftanesinu, en mér finnst það auka atriði.. en þar megum við pottþétt hafa Stubbu og verðum í pínu "sveitafíling" þannig að hún fær ekki víðáttubrjálæði. hehe..
Ég og mamma erum svo byrjaðar að hlaupa aftur. Ekki saman þó, því hún er á AK og ég RVK, en við erum bara duglegar að hvetja hvor aðra áfram í gegnum MSN og síma og svona.. það verður ágætt held ég bara. Við fórum saman á þriðjudaginn í hádeginu og hlupum 5 km. Vorum reyndar alveg búnar á því og vorum kannski ansi brattar.. Ég fór svo áðan og fann mér rosa fína leið til að fara og það var geggjað veður. 10 stiga hiti og smá rigning, algjört æði. Svo eldaði ég pítu með BBQ kjúkling.. lovely :D
Í dag var svo fyrsti skóladagurinn.. hann var stuttur og góður.. ég var komin kl 8 og farin kl 09:30 hehe.. við erum 8 stelpurnar í bekknum og ég held að það verði bara kósý :D
en segjum þetta gott í bili..

RE: komin suður, skólinn byrjaður og fl.
Guðrún Soffía - 09.01.2009 14:19RE: komin suður, skólinn byrjaður og fl.
Sirrý - 10.01.2009 00:59Já, þetta verður sko án efa kósý önn..
Það verður ekkert mál að keyra frá Álftanesi í vinnuna, verst fyrst en svo venst það .. held ég..
Sé þig á mánudaginn sæta ;)