Aníka Lind Björnsdóttir

http://old.banika.net/

Einstaklingsvefur um líf mitt og áhugamál, Aníka Lind Björnsdóttir. Hér er að finna ljósmyndir, blogg, uppskriftir og annað sem Aníka Lind skrifar um. Aníka Lind er hárgreiðslunemi við Iðnskólann í Hafnafirði.

Efni

Flutningur á næsta leiti

11.01.2009 21:23 - 449 lestrar - 1 comment

Jæja.. þá eru nánast öll mál komin á hreint. Við erum búin að finna leigjendur fyrir íbúðina okkar, við erum búin að finna okkur íbúð, við flytjum 1. feb. Það eina sem er eftir er að fullgera leigusamninga, þinglýsa, flytja og afhenda. ég er rosalega fegin að öll óvissan hvað þetta mál er komin á hreint.

Með samningsmál, þá erum við Arnar búin að fylla út umsókn fyrir nýjum samning sem ég fer með niður í fræðslusetur á morgun. ég þarf reyndar að fá launaseðlana mína til að láta reikna út hvað ég er búin með mikið og þá er hægt að gera nýjan samning. 

Svo byrjar bara skólinn alveg á fullu á morgun.. fyrsta fulla skólavikan í næstu viku.

 

Annars fórum við hjónin á Transporter 3 á föstudagskvöldið. ég hef bara aldrei verið jafn svekkt með Jason Statham og þarna. ekki nóg með það að þetta var ástarþvæla með 1 hasaratriði, að þá var mótleikonan hans ekki heit og hund leiðinleg. Til að bæta ofan á það, þá sat kona/stelpa fyrir framan okkur sem svoleiðis baðaði sig í ógeðis ilmvatninu sínu áður en hún fór í bíó, þannig að við vorum að kafna alla myndina. Það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur endalaust spreyjað á sig og ekki fengið ógeð af lyktinni! 

Í gær fórum við svo og skoðuðum íbúðir útum allt.. þær voru ekkert til að hrópa húrra fyrir og þá allra síst fyrir peninginn sem var settur á þær! En þær fóru þó skánandi, en við enduðum í íbúðinni á Álftanesinu sem við vorum alltaf með á bak við eyrað. Í dag kom þetta svo allt saman í ljós, sem betur fer.

Helgi fer svo norður á morgun.. veit ekki hvenar ég fer norður aftur, en það verður til að pakka og vesenast. Við þurfum bara að þrauka 3 vikur í fjarbúð í viðbót. Það verður geggjað að hætta þessu flakki í bili..

 

En ég ætla að segja þetta gott í bili..


komin suður, skólinn byrjaður og fl.

08.01.2009 18:34 - 348 lestrar - 2 comment

Jæja, þá er ég komin suður og dró Helga með mér. Við komum á þriðjudagskvöldið.

Ég er nú ekki mikið í skólanum, 3 daga í viku, og ætla að vona ég nái að vinna eitthvað með. Ég get hins vegar ekki hvenær ég byrja, því það þarf að hnýta alla lausa enda í sambandi við samningsriftinguna við Passion.. þangað til get ég ekki skrifað undir nýjan samning við Arnar. En þetta vonandi leysist allt í næstu viku.

Við erum svo á fullu að reyna að finna leigjendur fyrir íbúðina okkar á AK. Helgi er formaður nefndarinnar og sér að mestu leyti um þetta. Enda fer hann heim á mánudaginn og þá vonandi skýrist allt betur. Við erum svo að bíða eftir svörum um nokkrar íbúðir hér í RVK, en erum með eina skothelda, sem ég er spenntust fyrir. Hún er reyndar á Álftanesinu, en mér finnst það auka atriði.. en þar megum við pottþétt hafa Stubbu og verðum í pínu "sveitafíling" þannig að hún fær ekki víðáttubrjálæði. hehe..

Ég og mamma erum svo byrjaðar að hlaupa aftur. Ekki saman þó, því hún er á AK og ég RVK, en við erum bara duglegar að hvetja hvor aðra áfram í gegnum MSN og síma og svona.. það verður ágætt held ég bara. Við fórum saman á þriðjudaginn í hádeginu og hlupum 5 km. Vorum reyndar alveg búnar á því og vorum kannski ansi brattar.. Ég fór svo áðan og fann mér rosa fína leið til að fara og það var geggjað veður. 10 stiga hiti og smá rigning, algjört æði. Svo eldaði ég pítu með BBQ kjúkling.. lovely :D

Í dag var svo fyrsti skóladagurinn.. hann var stuttur og góður.. ég var komin kl 8 og farin kl 09:30 hehe.. við erum 8 stelpurnar í bekknum og ég held að það verði bara kósý :D

en segjum þetta gott í bili..


Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir 2008

01.01.2009 22:24 - 345 lestrar - 2 comment

Árið 2008:


Janúar: Skólinn byrjaði á fullu og ég orðin 3ja árs nemi. Ég byrjaði að vinna í Laugum að “þjóna” fólki í sloppum og sundskýlum og ég sjálf í jogging gallanum.

img_2306Febrúar:  Skólinn fór á Selfoss og klippti þar á þemadögum FSU.  Annars er mánuðurinn svo stuttur að lítið kemst fyrir í honum.

Mars: Mamma átti afmæli, skólinn og vinnan gekk sinn vana gang og ef ég man rétt gerðist ekkert meira merkilegt þann mánuðinn. Fjóla vinkona eignaðst hana Lilju Þöll þann 17. Mars.

Apríl: Pabbi átti afmæli, páskarnir og páskafrí. Ég og Hanna mín kíktum á tjúttið um páskana ásamt Jóa og fleirum.

Maí: Önnin að verða búin, prófin byrjuðu og ég rúllaði þeim að sjálfsögðu upp. Ég kom heim í sumarfrí, réttara sagt, að vinna á Passion. Við byrjuðum svo að leggja drög að pallasmíðum.

img_2510_600

Júní: Ekkert nema skemmtilegt í vinnuni, ég byrjaði að klippa á fullu og náði frekar góðum framförum í klippingum. Helgi minn varð 25 ára og 5 ára stúdent frá MA. 17. Júní var svo bara kósý. Pallinum miðaði ágætlega áfram, miðað við að unnið var bara frá 18-22 og svo um helgar. Elsa og Krissi kíktu á skerið og Elsa var svo sannarlega með bumbu fyrir allann peninginn!

Júlí: Við hjónin áttum 1 árs brúðkaupsafmæli og héldum við uppá það með því að fara út að borða á Friðrik V. Það var hreint út sagt yndislegt. Ég átti 23 ára afmæli og við vorum langt komin með að smíða pallinn. Hann kláraðist svo og borin viðarvörn á hann. Þvílíkur hiti var þennan mánuðinn og ekki man ég eftir eins sveittum vinnudögum og þennan mánuð. Seint í mánuðinum styttist í að Elsa kæmi krílinu í heiminn.

img_2579_600Ágúst: Verslunarmannahelgin var yndisleg og við slökuðum bara á á fína pallinum.  Ennþá var geðveikt veður og Elsa og fleiri biðu eftir að gullið léti sjá sig. Fimmtudaginn 7. Ágúst lét lítil sæt prinsessa sjá sig og hef ég aldrei verið jafn spennt, stolt og ánægð á sama tíma. 25. Ágúst flugum við Helgi svo út til Noregs og fengum að skoða gullið, sem fékk nafnið Alís. Eftir viku dvöl í Bergen, fórum við til Osló og vorum þar hjá Jórunni og Sunnu í nokkra daga. Harpa Vinkona eignaðist svo strákinn sinn, Friðrik Bjarnar, þann 08.08.08. Ekki slæm dagssetning þar.

September: Við komin heim frá Noregi og ég byrjaði í skólanum aftur á 4. önn. Fullt af skemmtilegum áföngum og bara skóli 4 daga í viku. Ég fékk vinnu á Salon Reykjavík hjá Arnari og fílaði það í tætlur. Bæði Stella og Freyja eiguðust svo yndilsega stráka, þá Krisján Þór og Heiðar Magna.  

Október: Skóli gekk sinn vanagang. Guðbjörg hélt afmælispartý á Skvísustöðum þann 18. og var mikið fjör.  Elsa systir og Alís kíktu í heimsókn og voru í rúma viku. Yndislegt alveg hreint. Árshátíð hárgreiðslunema í Iðnskólanum var haldin og sögur segja að það hafi verið massa fjör. Ég verð að trúa því.

Nóvember: Lítið gerðist þann mánuðinn annað en undirbúningur fyrir próf og tilhlökkun í að fara heim var í hámarki. Ég var á fullu í Galagreiðsluhönnun og fleira. Er ekki frá því nema smá stress hafi gert vart við sig, enda kannski normalt.

img_3039_400_01Desember: Prófin byrjðu, ég rúllaði þeim upp að sjálfsögðu. Jólafríið byrjði 11. Des og ég byrjaði á Passion. 11 des komst ég líka að því að ég þyrfti að fara aftur suður eftir áramót í skólann og þar af leiðandi missti samninginn minn á Passion. Ég bloggaði um það allt hérna aðeins á undan. Jólin komu og vorum við öll sistkynin í L16. Aðfangadagskvöld var æði og fengum við Helgi æðislegar jólagjafir.

 

Milli jóla og nýjárs höfðum við það bara rosa gott. Stubba finnur alveg á sér þegar áramótin nálgast og verður aðeins nojaðari en hún er venjulega.
Á gamlárskvöld vorum við svo á Þelamörk hjá tengdó og kom amma hans Helga norður og var með okkur. Það var geggjaður matur og mjög kósý kvöld. Mér fannst áramótaskaupið algjör snilld og bókstaflega grenjaði úr hlátri yfir því!

 

Árið 2009 byrjaði svo svona:
Við sváfum heillengi fram eftir og þegar við vöknuðum horfðum við á Ríkið til kl. 18 og fórum svo í mat í L16. Spiluðum smá Trivial og kvöddum Elsu og Krissa því þau fara suður á morgun og svo út á laugardaginn. Ég á eftir að sakna þeirra svakalega mikið, og sérstaklega þá að sjá ekki Alísi mína stækka.
Planið er svo að fara suður 6. Jan því skólinn byrjar 7.  Jan.

Þangað til ég hef eitthvað meira og merkilegra að segja, þá látum við þetta gott í bili.


Gleðileg jól

25.12.2008 15:05 - 1008 lestrar - 1 comment
Gleðileg jól

jólin koma

22.12.2008 20:58 - 622 lestrar - 0 comment

Á döfinni:

* síðasti vinnudagur á morgun

* aðfangadagur á hinn

* yndislega jól framundan

 

Búið og gert:

* Elsa systir komin með Alísi og Krissa

* Skreyta jólatréð og baka lakkrístoppa

* Kaupa nýtt borðstofuljós og setja það upp

* Fara til tannlæknis og var ekki svikin af peningunum þar

* Þrífa (svona nokkurnveginn)

* Senda jólakortin

* Pakka inn jólagjöfum og fara með þær 

 

ég ætla svo ekkert að blogga fyrr en örugglega bara eftir jól, svo ég segi bara: 

 

Gleðileg jól


« fyrri síða | næsta síða »

Upp aftur